Nýlega fundust 2000 ára gamlir rúnasteinar ristir með eldra fúþarkinu í bænum Hóli (Hole) nærri Hringaríki í Noregi. Steinarnir fundust ofan í því sem virðist bálfaragryfja í kumbldys og nærri þremur öðrum dysjum. Ásamt steinunum fundust leyfar af beinum sem koma frá karlmanni.
Á steinunum eru margar ristur, fyrir utan rúnirnar einnig reitir og nokkur ógreinanleg tákn. Sýnilegustu rúnirnar stafa, að því virðist, nafnið ‘idiberug’ (rúnin í enda orðsins gæti verið öfugt n en mun líklegra g). Orðið getur verið Iðiberg eða Iðibjörg (eftv Idibera, Idibergu eða Idiberga), líklega nafn konu. Kannski eiginkona þess látna?
Þarna eru einnig þrír rúnastafir á hægri hlið steinsins sem stafa fyrstu rúnir fúþarksins; f, u og þ – líkt og a,b, c er í rómversk-latneska stafróinu sem við notumst við nú á dögum.
Þessi byltingarkenndi fundur sannar að notkun rúna á Norðurlöndunum hófst mun fyrr en talið hefur verið hingað til.





